Innlent

350 ökumenn stöðvaðir - fjórir ölvaðir

Um þrjú hundruð og fimmtíu ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu.

Fjórir ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið eða undir áhrifum fíkniefna og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Fjórum til viðbótar var jafnframt gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum.

Markmiðið með ofangreindu átaki er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunar- og fíkniefnaakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni.

Minnt er á viðvörunarorðin „Eftir einn ei aki neinn" en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum lyfja en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.

Við áðurnefnt umferðareftirlit helgarinnar naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar lögreglumanna frá embætti ríkislögreglustjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×