Innlent

Eftirsóknarvert að halda hér jól

Bandaríska fréttastöðin CNN telur að Reykjavík sé einn af tíu bestu stöðum í heiminum til að verja jólunum á. Frá þessu er greint á vef Ferðamálastofu.

Meðal þess sem CNN nefnir sem aðdráttarafl er að hér séu þrettán jólasveinar og jólaþorp í Hafnarfirði. Þá er vísað til trúar á álfa og huldufólk hér á landi.

„Þá kemur fram að fólk byrji að fagna jólunum strax í nóvember með jólahlaðborðum. Að sjálfsögðu er svo klykkt út með frásögn af hinni miklu flugeldasýningu á gamlárskvöld og þrettándanum," segir á vef Ferðamálastofu.- óká






Fleiri fréttir

Sjá meira


×