Innlent

Dorrit tendrar jólatréð í dag

Forsetafrúin kveikti áður á jólatré Kringlunnar árið 2005. fréttablaðið/gva
Forsetafrúin kveikti áður á jólatré Kringlunnar árið 2005. fréttablaðið/gva

Dorrit Moussaieff forsetafrú mun tendra ljósin á jólatré Kringlunnar við hátíðlega áthöfn í dag klukkan 15. Á sama tíma hefst góðgerðasöfnun á jólapökkum undir jólatréð.

Jólapakkasöfnun Kringlunnar í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands fyrir börn er árviss viðburður á aðventunni. Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, segir Íslendinga hafa tekið söfnuninni afar vel og í fyrra hafi safnast yfir 5.000 jólagjafir. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×