Erlent

Sprengdu sig í loft upp inn á lögreglustöð

Frá Afganistan, mynd tengist frétt ekki beint.
Frá Afganistan, mynd tengist frétt ekki beint.
Tveir menn sprengdu sig í loft upp fyrir utan höfuðstöðvar lögreglunnar í bænum Paktika í Afganistan í morgun. Að minnsta kosti 12 lögreglumenn létust í sjálfsmorðsárásinni og þá eru 13 lögreglumenn særðir.

Borgin Paktika er á landamærum Afganistans og Pakistan en uppreisnarmenn hafa gert margar árásir á borgina. Mennirnir tveir voru klæddir sem lögreglumenn og komu inn á lögreglustöðina með 20 mínútna millibili. Annar mannanna sprengdi sig í loft upp inn í byggingunni en hinn nálægt aðalinngangi byggingarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×