Innlent

Jóhanna: Mikilvægt að þátttakan verði góð

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kaus til stjórnlagaþings í Hagaskóla í dag. Hún gætti að jöfnu kynjahlutfalli í sinni kosningunni og sagði mikið úrval af góðu fólki í framboði.

Jóhanna sagði kosninguna stórmerkilega tilraun. Þingmenn hafi hingað til ekki verið færir um að klára endurskoðun stjórnarskrárinnar og nú fái almenningur tækifæri til þess.

Það kom henni á óvart hversu fáir voru á kjörstað á miðjum degi. Hún segir mjög mikilvægt að þátttaka verði í kosningunum verði góð og hvatti almenning að koma á kjörstað og taka þátt í mótun stjórnarskrárinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×