Innlent

Jónína Ben stendur með eiginmanni sínum

Jónína Ben og Gunnar Þorsteinsson
Jónína Ben og Gunnar Þorsteinsson Samsett mynd/Vísir.is
Jónína Benediktsdóttir, eiginkona Gunnars Þorsteinssonar í Krossinum, styður við bakið á eiginmanni sínum. Í gær sendi hún Gunnari kveðju á Facebook: „Gunnar minn, ég dáist að æðruleysi þínu. Ég elska þig."

Margir hafa sent Gunnari og Jónínu kveðju á Facebook síðu þeirra en Jónína setti inn færslu í gær, þar sem hún segir málið vera erfitt. „Það var erfitt en gott að sjá manninn minn í kvöld í Kastljósinu. Ég er svo þakklát að ég hef fylgst með þessu "gameplani" í 4 til 6 vikur og séð hvernig fjöðrin varð að heilu hænsnahúsi sem nú hefur spurngið í loft upp. Málið er alvarlegt og við höndlum það þannig. Við þökkum ykkur fyrir allan stuninginn elsku vinir og vandamenn."

Þá segir Jónína að enginn fái að skemma hjónaband þeirra enda sé það ekki sjálfgefið að finna ástina 53 og 58 ára gömul. „....Ég er lánsöm með að elska og vera elskuð. Það er ekki sjálfgefið að finna stóru ástina 53 ára, hvað þá 58 en okkur hjónum tókst það. Enginn sérfræðingur nær að skemma það," segir Jónína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×