Kýldi og kjálkabraut karlmann við Krílið Erla Hlynsdóttir skrifar 30. nóvember 2010 09:44 Mynd úr safni
Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Vestfjarða dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið annan karlmann ítrekað hnefahöggum í andlitið með þeim afleiðingum að hann kjálkabrotnaði, tveir endajaxlar losnuðu og slímhúð í kjálka rofnaði, ásamt því að tilfinning í neðri vör skertist. Atvikið átti sér stað í apríl á þessu ári fyrir utan verslunina Krílið við Sindragötu á Ísafirði Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða brotaþola tæpar 400 þúsund krónur í miskabætur, sem og málskostnað. Sá dæmdi á að baki tvo refsidóma. Annar þeirra er fyrir handrukkun árið 2008 og hinn fyrir líkamsárás á síðasta ári. Við skýrslutöku bar brotaþoli að hann hafi umrædda nótt farið af skemmtistaðnum Ömmu Habbý að versluninni Krílinu ásamt félaga sínum sem ætlaði að kaupa sígarettur. Þegar þeir voru að versla í bílalúgu kom Hummer-bifreið aftan að þeim og ýtti ökumaður á flautuna. Félagi brotaþola leit þá við og gaf ökumanni „puttann." Þá var aftur flautað og brotaþoli gekk að bílnum farþegamegin þar sem rúðan var skrúfuð niður. Farþegi bílsins spurði manninn hvort hann hafi verið að sýna sér „puttann" en brotaþoli neitaði því og sagði vin sinn hafa gert það. Farþeginn andmælti og eftir skamma stund gaf brotaþoli honum fingurinn og spurði „Já, ertu að tala um þennan putta?". Við það kýldi farþeginn manninn með krepptum hnefa út um opinn gluggann þannig að hann vankaðist. Því næst var bílnum ekið í burtu en brotaþoli stóð eftir með brotinn kjálka. Hann þurfti að vera á fljótandi fæði í sjö vikur eftir árásina. Spurður af lögreglu hvort hann hafi verið að ögra farþega bílsins sagði hann: „Já, auðvitað er þetta ákveðin ögrun, en þetta var meira, kannski, svona grín bara." Hann vildi ekki kannast við að hann hafi verið ógnandi í tilburðum. Dómurinn var kveðinn upp þann 19. nóvember.
Mest lesið Matráður segir upp á Mánagarði Innlent Segja „fit to fly“ vottorð brjóta gegn siðareglum lækna Innlent Byrja að rukka sérstaklega fyrir ökuskírteini á plasti Innlent „Pabbi minn hefði örugglega orðið reiður“ Innlent Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Viðsnúningur í manndrápsmáli í Landsrétti Innlent Risastór ákvörðun íbúa í Þorlákshöfn handan við hornið Innlent Skiluðu meðmælalistum í Hörpu Innlent Telur ráðningu Jóns í ráðuneytið ekki koma til af góðu Innlent Fleiri fréttir Sigurjón leiðir í Norðausturkjördæmi „Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið Læknar á leið í verkfall Guðmundur Ingi leiðir og skrifstofustjórinn í öðru Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Viðsnúningur í manndrápsmáli í Landsrétti Formaður Lýðræðisflokksins sagður misbeita samsæriskenningu „Pabbi minn hefði örugglega orðið reiður“ Fékk slá í höfuðið og málið fer fyrir Hæstarétt Borgarfulltrúi skipar annað sætið í kjördæmi formannsins Risastór ákvörðun íbúa í Þorlákshöfn handan við hornið Hvetja Ísland til að draga enn frekar úr losun Stórt skref stigið í átt að fullgildri aðild Færeyja, Álandseyja og Grænlands Framboðslisti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi birtur Á ekki von á að þeim fjölgi sem þurfi innlögn vegna E.coli Fækka áramótabrennum í Reykjavík um fjórar Þau skipa framboðslista Pírata í kosningunum Bein útsending: Vítt og breitt um almannavarnamál „Þegar þú liggur yfir þessu dag og nótt þá byrjar þú að þekkja þá“ Máttu ekki hvetja hlunnfarið starfsfólk til að hætta Fá greitt 150 þúsund krónum minna en læknar í sömu stöðu Matráður segir upp á Mánagarði Listum skilað í Hörpu og lokadagur Norðurlandaráðsþings Ekki nauðvörn og fimm ára dómur fyrir manndrápstilraun stendur Eitt barn útskrifað af gjörgæslu Ábyrg framtíð býður bara fram í Reykjavík norður Skiluðu meðmælalistum í Hörpu Telur ráðningu Jóns í ráðuneytið ekki koma til af góðu Lilja Rafney skipar annað sætið á lista Flokks fólksins Þau eru í framboði fyrir Sósíalistaflokkinn Sjá meira