Innlent

Kannabisræktun: Nafnlaus ábending kom lögreglu á sporið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt kannabisræktun í heimahúsi og handtók sjö menn ef erlendum uppruna.

Eftir yfirheyrslur kom í ljós að sex þeirra vissu ekki af ræktuninni og var sleppt, en húsráðandinn játaði brot sitt. Hann var að rækta 30 plöntur, sem voru komnar vel á veg.

Það var nafnlaus ábending frá borgara, sem leiddi til þess að upp komst um málið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×