Innlent

Brutust inn í Breiðholti og stálu sígarettum

Brotist var inn í myndbandaleigu og söluturn í Breiðholti í nótt og þaðan stolið 17 kartonum af sígarettum.

Þjófavarnakerfi fór í gang, en samkvæmt upptökum úr eftirlitsmyndavélum

voru þjófarnir aðeins þrjátíu sekúndur á vettvangi, eftir að hafa brotið sér leið inn með kúbeini.

Þeir voru því horfnir þegar lögregla kom á vettvang, en lögregla bindur vonir við að upptökurnar leiði hana á spor þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×