Innlent

Tók lögreglumann hálstaki

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Liðlega tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa veist að lögreglumanni, sem var að yfirbuga hann, og tekið hann hálstaki með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn marðist. Árásin átti sér stað fyrir framan skemmtistaðinn Glaumbar þann 17. október í fyrra.

Ákæran gegn árásarmanninum var þingfest í morgun en hann tók sér frest til að lýsa yfir afstöðu sinni til ákæruefnisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×