Erlent

Hrædd um að brjóstin verði gerð upptæk

Anastasia neitar að láta brjóstin af hendi.
Anastasia neitar að láta brjóstin af hendi.

Þjóðverji einn hefur krafist þess að fyrrverandi kærasta hans endurgreiði honum tæpar 600 þúsund krónur en hann hafði borgað fyrir brjóstastækkun hennar áður en þau hættu saman. Kærastan, sem kölluð er Anastasia í þýska blaðinu Bild, segist logandi hrædd um að brjóstin, eða sílíkon púðarnir öllu heldur, verði gerð upptæk.

Maðurinn gæti reyndar átt ágætis séns á því að vinna málið, því Anastasia skrifaði undir samning þess efnis að hún myndi vera með honum í heilt ár í það minnsta, ef hann borgaði fyrir brjóstastækkunina.

Hún hefur reyndar nú þegar lagt inn á reikning mannsins tæpa hálfa milljón en hann er ekki sáttur og vill fá allt, eða brjóstin.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×