Innlent

Síbrotamaður í varðhald

Ungur maður, sem lögreglan á Selfossi handtók í Grímsnesi ásamt öðrum, snemma á föstudagsmorgun, hefur verið úrskurðaður í svonefnda síbrotagæslu, eða gæsluvarðhald til 22. desember.

Áður en þeir voru handteknir köstuðu þeir þýfi úr fjórum sumarbústöðum út úr bíl sínum á ferð, þar til lögregla náði þeim.

Maðurinn hefur fjölda innbrota og annara afbrota á samviskunni, meðal annars innbrot í marga sumarbústaði síðastliðið vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×