Erlent

Hélt bekkjarfélögum sínum í gíslingu

MYND/AP

Nemandi við menntaskóla í Wisconsins í Bandaríkjunum hélt 23 nemendum og kennara þeirra í gíslingu í nokkrar klukkustundir í gærkvöldi. Lögregla var kölluð að skólanum skömmu eftir að nemandinn sem var fimmtán ára gamall, dró upp tvær skammbyssur og hótaði að skjóta bekkjarfélaga sína.

Lögreglan umkringdi skólastofuna en eftir fimm tíma umsátur sleppti hann gíslum sínum og skaut sig þegar lögregla kom inn í stofuna.

Gíslatökumaðurinn var fluttur á spítala en óljóst er um líðan hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×