Innlent

400 ofbeldismál komin upp

Ofbeldi á heilbrigðisstofnunum er algengast á geðdeildum og eru skráð á milli 350 og 400 tilvik á ári á geðdeildum Landspítalans. fréttablaðið/Úr safni
Ofbeldi á heilbrigðisstofnunum er algengast á geðdeildum og eru skráð á milli 350 og 400 tilvik á ári á geðdeildum Landspítalans. fréttablaðið/Úr safni
Hátt í 400 ofbeldis­tilvik eru skráð á hverju ári á geðdeild Landspítalans. Á það við um tilvik sem eru flokkuð sem munnlegt eða líkamlegt ofbeldi og eiga sér stað á geðheilbrigðissviðinu öllu. Flest atvikin snúa að starfsfólki sjúkrahússins og er munnlegt ofbeldi, oftast hótanir, mun algengara en líkamlegt. Jón Snorrason, deildarstjóri á Kleppi, segir rannsóknir á viðfangsefninu komnar langt á veg erlendis þar sem fjallað hefur verið um málið í fjölda ára.

„Það er staðreynd að það er víða ofbeldi á heilbrigðisstofnunum," segir Jón. „En þetta er vissulega vandmeð farið viðfangsefni vegna þess að maður verður að ná að setja sig í spor þeirra sem sýna þessa hegðun og skilja hvað liggur á bak við."

Jón segir starfsfólk á geðdeildum hér á landi fá bæði þjálfun og fræðslu um það hvernig bregðast eigi við ofbeldi og nauðsynlegt sé að viðhalda því reglulega.

„Allar þær rannsóknir sem gerðar hafa verið stuðla að því að við reynum að skilja þetta fyrirbæri betur. Af hverju það gerist og hvernig við getum komið í veg fyrir þetta," segir hann.

Jón segir að í sumum tilvikum hefðu getað skapast alvarlegar afleiðingar ef ekki hefði verið tekið rétt á málunum. Hann segir þó að sem betur fer séu alvarleg atvik mjög fá. Tíðni ofbeldistilvika á heilbrigðisstofnunum er langhæst á geðdeildum, en hún hefur haldist stöðug milli ára. Á árunum 2006 til 2008 eru skráð á milli 350 til 400 tilvik á geðdeildum Landspítalans.

Sigmundur Sigfússon, forstöðulæknir geðdeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA), segir að sökum manneklu komi stundum til þess að lögreglan sé kölluð út til aðstoðar þegar ofbeldis­atvik komi upp, en þó sé slíkt sjaldgæft. Nauðungarvistun sé mun fátíðari hér á landi en í hinum Norðurlandaríkjunum og eru flest ofbeldistilvikin á geðdeild FSA tengd slíkum vistunum.

„Við fáum um 250 innlagnir á ári og þar af eru um 3 prósent nauðungarvistanir," segir Sigmundur. Á Norðurlöndunum sé hlutfallið mun hærra, eða rúmlega 30 prósent af öllum innlögnum. Á geðdeild FSA hafa verið skráð fjögur ofbeldisatvik það sem af er ári.

sunna@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×