Innlent

Segir Björn Val sendan á vettvang til að draga athygli frá lygum ráðherra

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson

Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, neitar því ekki að hann sé að íhuga meiðyrðamál gegn Birni Vali Gíslasyni starfsbróður sínum vegna ummæla hins síðarnefnda um styrki til hans, en Björn Valur kallaði þá mútur. 

Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, skrifar á vef sínum um landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins frá því í sumar þar sem kjörnir fulltrúar flokksins voru beðnir um að íhuga stöðu sína vegna styrkja. Við umræður um tillöguna kallaði Halldór Gunnarsson, landsfundarfulltrúi, eftir því að Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður, og Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi, íhuguðu stöðu sína sem kjörnir fulltrúar almennings í ljósi upplýsinga um styrkveitingar til þeirra frá fyrirtækjum. Enginn var hins vegar nafngreindur í ályktun fundarins. Hægt er að sjá ræðu Halldórs hér.

Orðrétt segir Björn Valur á vef sínum: „Engan veit ég þingmann um utan umræddan Guðlaug Þór sem er með landsfundarályktun síns eigin flokks á bakinu um að hann skuli hætta sem þingmaður flokksins. Og hversvegan ætli það sé? Jú, vegna mútugreiðsla sem þingmaðurinn þáði og komu honum til þeirra valda sem hann hafði sem ráðherra í ríkisstjórn Geir H Haarde."

Í viðtali við Fréttatímann kallar Guðlaugur Þór Björn Val „brjóstumkennanlegan galgopa." Guðlaugur Þór er sagður íhuga meiðyrðamál gegn Birni Val, en vildi ekki tjá sig um það við fréttastofu, vildi hvorki neita því né játa. Hann vildi ekki koma í viðtal en sagði að það blasti við að Björn Valur væri sendur á vettvang til þess að draga athyglina frá alvarlegum vandamálum ríkisstjórnarinnar. Annars vegar ósannsögli forsætisráðherra gagnvart þinginu varðandi greiðslur til ráðgjafa ríkisstjórnarinnar og hins vegar vandamálum í þingflokki Vinstri grænna „því þar logaði allt stafnanna á milli og klofningur þeirra væri öllum ljós," sagði Guðlaugur Þór. thorbjorn@stod2.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×