Alþingi hugsanlega vanhæft 5. desember 2010 18:43
Þingmenn Hreyfingarinnar óttast að Alþingi ætli breyta tillögum stjórnlagaþings áður en þjóðin fær að kjósa um þær. Fulltrúi á stjórnlagaþingi segir að Alþingi verði hugsanlega vanhæft til að fjalla um tillögur þingsins. Stjórnlagaþingi er gert að leggja fram lagafrumvarp með tillögum um breytingar á stjórnaskrá. Samkvæmt 16. grein í starfsreglum stjórnlagaþings á Alþingi að fá frumvarpið fyrst til meðferðar áður en það fer í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þingmenn Hreyfingarinnar mótmæla þessu og telja eðlilegra að frumvarpið fari beint í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Við reyndum að fá þessu breytt mjög ákaft og ítrekað í forsætisnefnd en það var ekki hlustað á það. Það er alveg greinilegur vilji hjá þinginu að læsa krumlunum í drögin að stjórnarskránni og breyta þeim sjálft og það er ekki það sem þjóðin vill. Það er alveg á hreinu," segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. Þorvaldur Gylfason, stjórnlagaþingsfulltrúi, segir að ákvörðunarvaldið liggi hjá Alþingi. Sú hætta sé hins vegar fyrir hendi að Alþingi lendi í vandræðum ef stjórnlagaþing leggur til að þingmönnum verði fækkað. „Þess vegna væri það eðlilegt frá venjulegum vanhæfis sjónarhóli að þingið léti þjóðkjörnu stjórnlagaþingi eftir að útbúa frumvarpið sem þjóðin fengi síðan að segja álit sitt á án efnislegrar tillögugerðar Alþingis um breytingar á frumvarpinu," segir Þorvaldur.
Mest lesið Segja „fit to fly“ vottorð brjóta gegn siðareglum lækna Innlent Byrja að rukka sérstaklega fyrir ökuskírteini á plasti Innlent Faðir Dags gagnrýnir Kristrúnu: „Dagur veginn og metinn og léttvægur fundinn“ Innlent Ekkert gaman að heyra að allt sé að fara til fjandans Innlent Trump lék ruslakarl í Wisconsin Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Ég sé bara íhaldssemi hérna“ Innlent Skrekkur í lausu lofti vegna verkfalls: „Þetta er út í hött“ Innlent Halda áfram leit eftir eyðileggingu flóðanna Erlent Nágranna Erlu enn saknað: „30 bílar bara í hrúgu hérna fyrir utan hjá mér“ Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Framboðslistum skilað í Hörpu Væri valdníðsla af starfsstjórn að gefa út nýtt hvalveiðileyfi Lilja Rafney skipar annað sætið á lista Flokks fólksins Þau eru í framboði fyrir Sósíalistaflokkinn Segja „fit to fly“ vottorð brjóta gegn siðareglum lækna Byrja að rukka sérstaklega fyrir ökuskírteini á plasti Ekkert gaman að heyra að allt sé að fara til fjandans Frestur til að skila framboðslistum rennur út í dag Ógnuðu afgreiðslumanni með hníf Faðir Dags gagnrýnir Kristrúnu: „Dagur veginn og metinn og léttvægur fundinn“ „Ég sé bara íhaldssemi hérna“ Skrekkur í lausu lofti vegna verkfalls: „Þetta er út í hött“ Ár frá andláti Ibrahims: „Hann er með okkur í hjarta og alls staðar í kring“ „Flokkarnir urðu skíthræddir“ Flestir treysta Miðflokknum best fyrir málefnum hælisleitenda Fá ekki nauðsynlega þjónustu vegna verkfalls: „Það verður mikið rof á hans þroskaferli“ Húsnæði verði „fyrst og fremst heimili en ekki fjárfestingarvara“ Þjónusturof hjá fötluðum börnum og hamfaraflóð á Spáni Kjörstjórn borist 26 listar Fær ekki krónu eftir slys í Húsdýragarðinum Sammála um að of langt hafi verið gengið á Covid-tímum Tók til baka það sem hún sagði um grunaðan höfuðpaur Leita allra leiða til að lengja í séreignarsparnaði inn á lánin Skora á Höllu að stoppa Bjarna Segist ekki transfóbískur en þó sammála J.K. Rowling Færri börn undir eftirliti vegna E.coli en enn fimm á gjörgæslu Kosningapallborðið: Formenn flokka sem bítast um fylgi frá hægri Verðbólgan hjaðnar og hamfaraflóð á Spáni Skert athygli þegar ekið var inn á öfugan vegarhelming Þau skipa lista Sósíalista í Suðurkjördæmi Sjá meira