Erlent

Wesley Snipes hefur afplánun hið fyrsta

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Dómari hefur fyrirskipað að Snipes á að hefja afplánun hið fyrsta. Mynd/ afp.
Dómari hefur fyrirskipað að Snipes á að hefja afplánun hið fyrsta. Mynd/ afp.
Dómari hefur fyrirskipað að Hollywood leikarinn Wesley Snipes skuli gefa sig fram við yfirvöld og hefja afplánun á þriggja ára fangelsisdómi sem hann hlaut fyrir skattalagabrot. Dómari í Flórída hafnaði í gær beiðni lögmanna Snipes um að mál hans yrði tekið fyrir að nýju. Árið 2008 var Snipes fundinn sekur um að hafa sleppt því að skila inn skattaskýrslum á árunum 1999-2001.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×