Innlent

Meint meðlagssvik tilkynnt dag hvern

Gæsluvellir í Reykjavík og fólk tengt þeim. Börn, starfsmenn og foreldrar.
Gæsluvellir í Reykjavík og fólk tengt þeim. Börn, starfsmenn og foreldrar.
Tryggingastofnun Ríkisins (TR) berast tilkynningar á hverjum degi um meint svik meðlagsþega, sem sagðir eru búa í óskráðri sambúð með meðlagsgreiðandanum sem þó greiði ekkert aftur til Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

TR sér um að greiða einstæðum foreldrum meðlag en sendir það síðan í innheimtu til Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

Jón Ingvar Pálsson, forstjóri Innheimtustofnunar sveitarfélaga, segir að reglulega vakni grunur um að foreldrar séu ranglega skráðir einstæðir og þiggi meðlag þegar hitt foreldrið búi í raun hjá þeim, stundi hugsanlega svarta vinnu og safni háum meðlagsskuldum hjá Innheimtustofnuninni. Slíkum grun sé ýmist beint til TR eða Ríkisskattstjóra.

„Það koma daglega ábendingar um svona til okkar. Þær eru allar kannaðar og sumar reynast á rökum reistar en aðrar ekki,“ segir Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu- og kynningasviðs TR.

Reynist vera rökstuddur grunur um að sambúðarskráningin sé röng er málið sent til Þjóðskrár, sem aftur sendir bréf á fólkið og gefur því tveggja vikna frest til að skýra mál sitt eða mótmæla ályktuninni um ranga skráningu.

Berist ekkert svar er lögheimilið einfaldlega flutt og TR breytir þá greiðslunum í samræmi við það. Ef fólkið þrætir fyrir ranga skráningu er málið sent til lögreglu, sem grefst fyrir um búsetuhagina. Á meðan á þessu ferli stendur heldur fólkið óbreyttum bótum.

Greint hefur verið frá því að meðlagsgreiðendur skulda hinu opinbera nú um 20 milljarða króna. Jón Ingvar segir þessar tölur brenglaðar, í ljósi þess að Innheimtustofnunin haldi kröfum á menn lifandi allt fram að andláti þeirra. Til samanburðar afskrifi skatturinn skuldir eftir fjögur ár og bankar eftir fjögur til átta ár.

Dæmi eru um að einstaklingar skuldi upp undir 15 milljónir í meðlag. - sh / sjá síðu 6



Fleiri fréttir

Sjá meira


×