Innlent

162 fjölskyldur afgreiddar strax

Fjölskylduhjálp tekur við gjöf útibús Íslandsbanka á Reykjanesi.
Fjölskylduhjálp tekur við gjöf útibús Íslandsbanka á Reykjanesi.
Útibú Íslandsbanka á Reykjanesi gaf Fjölskylduhjálp Íslands 2,5 milljónir króna af því tilefni að opnuð var þriðja starfsstöð samtakanna að Hafnargötu 29 í Reykjanesbæ í vikunni sem leið.

Tuttugu sjálfboðaliðar hafa nú þegar tekið til starfa á svæðinu og segir í tilkynningu frá Fjölskylduhjálp að þörfin sé brýn. 162 fjölskyldur hafa verið afgreiddar eftir að starfsstöðin var tekin í notkun og er talið að mun fleiri eigi eftir að nýta sér aðstoðina.

Auk Íslandsbanka gaf Nettó í Reykjanesbæ samtökunum 300.000 króna styrk. - sv



Fleiri fréttir

Sjá meira


×