Viðræður um fríverslun við Rússa hefjast á næsta ári 23. nóvember 2010 19:31
Össur Skarphéðinsson, utanríkisviðskiptaráðherra, staðfesti í dag fyrir Íslands hönd að viðræður um fríverslunarsamning við Rússland hefjist í byrjun næsta árs. Staðfestingin fór fram á ráðherrafundi EFTA-ríkjanna í Genf, og samhliða staðfestu EFTA-ríkin viðræður um fríverslun við Hvíta-Rússland og Kasakstan, en ríkin eru í sameiginlegu tollabandalagi með Rússum, að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Össur sagði fríverslunarsamning við Rússa vera Íslendingum mikilvægan þar sem töluverður útflutningur er á vörum og þjónustu þangað, og líkur á að hann geti vaxið verulega með góðum fríverslunarsamningi, ekki síst í ljósi aukinna samskipta ríkjanna upp á síðkastið. Össur sagði þennan áfanga mikilvægt skref til að halda áfram vinsamlegri þróun í samvinnu ríkjanna. Í ræðu sinni rifjaði Össur upp að Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, hefði nýlega lagt blessun sína yfir umfangsmikil verkefni í jarðhita í austurhluta Rússlands, og hugsanlega víðar, sem unnin yrðu með íslenskri tækniþekkingu. Hann taldi að fríverslunarsamningur gæti ýtt undir viðskipti þjóðanna á sviði orkuvinnslu og afleiddra verkefna. Á ráðherrafundinum í Genf tók Össur jafnframt upp ósk Færeyinga um að EFTA skoði möguleika á inngöngu þeirra í EFTA í framtíðinni, og lýsti jákvæðri afstöðu íslensku ríkisstjórnarinnar.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Innlent Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Innlent Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Innlent Öðrum viðskiptavinum Kjarnafæðis ekki meint af hakkinu Innlent Segir ummæli Trump um konur móðgun við alla Erlent Þrjú framboð fengu aðfinnslur frá kjörstjórn Innlent Búa sig undir meiri rigningu og fleiri flóð á Spáni Erlent Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Innlent Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Borgin lúffar fyrir aðdáendum áramótabrenna Öðrum viðskiptavinum Kjarnafæðis ekki meint af hakkinu Áfram í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni Grindavík á barmi gjaldþrots og læknar á leið í verkfall Vill vita hvort RÚV hafi einhvern tíma beðist afsökunar Segist aldrei geta litið Sigurð Inga sömu augum Þrjú framboð fengu aðfinnslur frá kjörstjórn Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Þau skipa framboðslista Lýðræðisflokksins Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Greiða bætur vegna tækja sem eyðilögðust eða biluðu í rafmagnsleysinu Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Flokkshollusta á undanhaldi Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Tæpur helmingur grunnskóla hefur bannað síma Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Máttu ekki selja eldaðan mat Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurjón leiðir í Norðausturkjördæmi „Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið Læknar á leið í verkfall Guðmundur Ingi leiðir og skrifstofustjórinn í öðru Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Viðsnúningur í manndrápsmáli í Landsrétti Sjá meira