Innlent

Samstaða með Palestínuþjóð

Mynd/AP

Félagið Ísland-Palestína efnir til samstöðufundar með palestínsku þjóðinni í Norræna húsinu 29. nóvember. Fram koma Árni Þór Sigurðsson þingmaður, Sveinn Rúnar Hauksson læknir, Kristín Sveinsdóttir og Hjálmtýr Heiðdal.

Að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna er alþjóðlegur samstöðudagur með palestínsku þjóðinni haldinn þennan dag ár hvert, en félagið Ísland-Palestína var stofnað á þessum degi árið 1987.

- gb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×