Erlent

Olíusmit í hreyflum Airbus A380

Vélinni var nauðlent í Singapore.
Vélinni var nauðlent í Singapore. MYND/AFP
Ástralska flugfélagið Qantas ætlar að kyrrsetja Airbus A380 risaþotur félagsins í þrjá daga til viðbótar en smávægilegir gallar hafa fundist í hreyflum vélanna. Hreyfill Airbus þotu sprakk í loft upp á dögunum yfir Singapore svo flugmennirnir þurftu að nauðlenda. Í kjölfarið fóru allar vélar sömu gerðar í ítarlega skoðun og segir forstjóri félagsins að í þreur vélum af sex hafi fundist olíusmit þar sem ekkert slíkt ætti að vera í svo nýjum hreyflum, en þeir eru tveggja ára gamlir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×