Erlent

Verðmætri Potter bók stolið

Óli Tynes skrifar
Harry og félagar.
Harry og félagar.

Verðmætu eintaki af fyrstu prentun einnar Harry Potter bókanna var stolið úr listasafni í Englandi. Það var Harry Potter And The Philosophers Stone. Aðeins eru til milli 300-500 eintök af bókinni og markaðsvirðið er um ein milljón króna.

Starfskona á listasafninu var að sinna hópi fólks þegar maður sem ekki var í hópnum notaði tækifæri og stal bókinni úr glerkassa sem ekki var læstur. Kona sem einnig var á safninu er talin hafa verið á útkíkki fyrir manninn. Myndir náðust af þeim báðum á öryggismyndavélar og vonast til að það hjálpi til við að hafa upp á þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×