Erlent

Bjargað eftir 50 daga á reki

Unglingum frá Fiji eyju var í gær bjargað eftir 50 daga á reki í litlum bát. Einn drengjanna er 14 ára en hinir tveir 15. Þeir lögðu upp frá heimili sínu 5. október síðastliðnum á tólf feta kænu sem þeir ætluðu að sigla til nágrannaeyjar. Síðan heyrðist ekkert til þeirra.

Nýsjálenski flotinn gerði umfangsmikla leit, en án árangurs. Það var svo fiskibátur sem loks fann drengina fyrir tilviljun. Þá voru þeir 1300 kílómetra frá heimaeynni. Þeir höfðu lifað á nokkrum kókoshnetum sem þeir höfðu með sér, regnvatni, hráum fiski sem þeir veiddu og einum máfi sem þeim tókst að handsama.

Utanborðsmótorinn í bát þeirra mun hafa bilað og það voru engar árár um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×