Innlent

Mikilvægt að koma fram við sprautufíkla eins og sjúklinga

Alþjóða Rauði krossinn telur að hægt sé að draga verulega úr útbreiðslu alnæmis ef sprautufíklar væru meðhöndlaðir sem sjúklingar frekar en afbrotamenn. Í skýrslu sem gefin er út af tilefni alþjóðlega alnæmisdagsins, sem er í dag, kemur fram að meðan dregið hefur úr nýmsitun alnæmis í Afríku hefur hún aukist mikið meðal sprautufíkla um allan heim.

Í skýrslunni er sagt að stjórnvöld hafi brugðist þessum hópi með því að dæma fólk í fangelsi í stað þess að veita sprautufíklum betri aðgang að heilbrigðiskerfinu og aðstöðu til að fá hreinar nálar og sprautur til að koma í veg fyrir smit og sýkingar.



Sprautufíklar vanræktir


Rauði krossinn lítur á hina miklu aukningu alnæmissmits meðal sprautufíkla sem almennt heilbrigðisvandamál og sýni þá vanrækslu og mismunun sem þessi hópur þarf að kljást við á hverjum einasta degi. Verði ekkert að gert, standi almenningi jafnt sem sprautufíklum ógn af afleiðingunum því smit geti hæglega borist út fyrir hópinn.

Rauði krossinn segir að í löndum þar sem unnið hefur verið markvisst að því að draga úr sjúkdómum og smiti meðal sprautufíkla með því að veita þeim aðgang að heilbrigðisþjónustu, hreinum nálum og sprautum hafi tekist að stemma stigum við því að alnæmissmit meðal þessa hóps aukist og berist til almennings. Rauði krossinn hvetur stjórnvöld til að styðja slík verkefni og veita nægu fé í málaflokkinn.



Tuttugu hafa greinst með alnæmi í ár


Talið er að um 16 milljónir sprautufíklar séu í heiminum í dag, og að um 3 milljónir þeirra séu smitaðir af alnæmi. Flestir þeirra eru í Austur Evrópu og Asíu, en mikil aukning hefur verið á alnæmissmiti meðal sprautufíkla í flestum löndum heims.

Á Íslandi greindust 20 manns með alnæmi á þessu ári, sem er mesti fjöldi nýgreindra á einu ári frá upphafi mælinga. Líkt og annars staðar í Evrópu er aukningin mest meðal sprautufíkla og telur Rauði kross Íslands því að full ástæða sé til að veita þessum hópi aðstoð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×