Innlent

Barnaheill fá sex milljónir í styrk til uppbyggingar á Haítí

Frá Haítí.
Frá Haítí. MYND/AP
Barnaheill - Save the Children á Íslandi hafa fengið sex milljóna króna stuðning frá utanríkisráðuneytinu við uppbyggingarstarf á Haíti. Að sögn samtakanna verður sérstök áhersla lögð á menntun, heilsu og vernd barna. „Samtökin munu senda í allt 7,6 milljónir króna og verður féð einkum nýtt til að bregðast við útbreiðslu kóleru," segir í tilkynningu.

„Ástandið á Haítí eftir jarðskjálftann í janúar á þessu ári er enn mjög alvarlegt," segir ennfremur. „Útbreiðsla kóleru hefur ekki bætt stöðuna en ríflega 700 manns hafa þegar látist og 11 þúsund manns eru veikir af þessum sjúkdómi sem koma má í veg fyrir og veita meðferð við. Rúmlega ein milljón manna hefur búið við sóðalegar aðstæður í yfirfullum flóttamannabúðum frá því í janúar og milljónir til viðbótar búa í fátækrahverfum þar sem aðgangur að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu er nánast enginn. Börnin eru sérlega viðkvæm þar sem ónæmiskerfi þeirra þolir illa sjúkdóma eins og niðurgang og kóleru, sem geta dregið þau til dauða á nokkrum klukkutímum."

Samtökin segja að stuðningur ráðuneytisins sé mjög mikilvægur fyrir uppbyggingarstarfið á Haítí. „Barnaheill - Save the Children starfa nú eftir fimm ára neyðar- og uppbyggingaráætlun sem beitt er á þeim svæðum sem urðu fyrir jarðskjálftanum. Áhersla er lögð á þau svið sem hafa mest áhrif á líf og velferð þúsunda barna; menntun, vernd, heilsu og næringu, vatn og hreinlæti, skjól, lífsviðurværi, mataröryggi og -dreifingu sem og birgðir af öðrum toga. Markmið uppbyggingarinnar er að tryggja betra líf en var fyrir jarðskjálftann. Barnaheill - Save the Children á Íslandi hafa alls lagt 14 milljónir króna til starfsins á Haítí."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×