Innlent

Íslendingar björguðu manni úr sprungu á Suðurskautinu

Ekki hafa borist myndir frá aðgerðinni en hér má sjá búnaðinn sem notaður var þegar hann var prófaður á Íslandi
Ekki hafa borist myndir frá aðgerðinni en hér má sjá búnaðinn sem notaður var þegar hann var prófaður á Íslandi MYND/Arctic trucks

Starfsmenn frá Arctic Trucks á Íslandi taka nú þátt í leiðangri á Suðurskautslandinu, en í gærkvöldi náðu þeir á sjálfan Suðurpólinn, fyrstir leiðangra á þessu tímabili. Á föstudaginn í síðustu viku gerðist sá atburður að starfsmaður ferðaþjónustufyrirtækis í nágrenni Novo féll ofan í sprungu.

Í tilkynningu frá Arctic Trucks segir að maðurinn hafi ákveðið að fara í göngu um svæðið snemma morguns og þegar hann skilaði sér ekki til baka ákváðu félagar hans að svipast um eftir honum. „Þeir röktu spor hans í snjónum að sprungu og þegar þeir kölluðu niður í hana kom í ljós að maðurinn hafði fallið langt niður í sprunguna og sat þar fastur. Eftir margar árangurslausar björgunartilraunir, þar sem meðal annars var reynt að draga hann upp með snjósleða, voru starfsmenn Arctic Trucks sem voru í Novo, kallaðir til aðstoðar."

„Farið var á tveimur bílum frá Arctic Trucks og á annan bílinn var settur sérútbúinn krani sem fyrirtækið hefur hannað. Bílarnir voru bundnir saman með 40 metra millibili og öðrum bílnum ekið út á brún sprungunnar. Með hjálp spils og kranans fór einn maður niður í sprunguna með nauðsynlegan búnað til að losa fótleggi mannsins sem fest höfðu mjög illa."

Að sögn Eyjólfs Más Teitssonar og Freys Jónssonar starfsmanna Arctic Trucks sem tóku þátt í björgunaraðgerðunum, þurfti mikið átak til að losa manninn sem þá hafði verið ofan í sprungunni í um 6 klukkustundir. Það mátti ekki seinna standa því maðurinn var orðinn mjög kaldur og nokkuð ljóst að illa hefði farið ef bílanna og búnaðar þeirra hefði ekki notið við.

Ekki hafa borist myndir frá sjálfri björguninni en þessar myndir sýna prófanir á sama búnaði á Íslandi sumarið 2010.

Upplýsingar um leiðangrana er að finna á www.arctictrucks-expeditions.com og þar er einnig hægt að fylgjast með dagbókum frá starfsmönnum félagsins á Suðurskautinu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×