Kærasta Iker Casillas segir Ronaldo vera sjálfselskan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2010 23:00 Sara Carbonero. Mynd/AFP
Sara Carbonero, kærasta Iker Casillas, fyrirliða Real Madrid og spænska landsliðsins, ætlar að leggja það í vana að komast í fréttirnar vegna tengsla sinna við spænska landsliðsmarkvörðinn. Sara Carbonero starfar sem sjónvarpskona og tjáði sig opinberlega um Cristiano Ronaldo á dögunum. Hún vakti heimsathygli þegar hún smellti kossi á Casillas í beinni eftir að hafa tekið viðtal við hann skömmu eftir að Spánverjar tryggðu sér heimsmeistaratitilinn í sumar. „Ronaldo hefur alltf verið svona, sjálfselskur og alltaf að hugsa um hvað hann ætlar að gera inn á vellinum. Real Madrid keypti hann vitandi þetta," sagði Carbonero í viðtali í vinsælum spjallþætti á sjónvarpstöðinni sem hún vinnur hjá. „Eina vandamálið er hinsvegar það að hann var keyptur fyrir 96 milljónir evra og fólk getur ekki fyrirgefið honum það þegar hann gerir mistök," sagði Sara Carbonero. Spænskir fjölmiðlar hafa haft áhyggjur af andlegu hliðinni hjá Cristiano Ronaldo á þessu tímabili en Portúgalinn hefur ekki enn fundið netmöskvanna á þessu tímabili. Ronaldo hélt að hann hefði skorað sigurmarkið um síðustu helgi en þegar betur var að gáð þá skaut hann í félaga sinn Pepe sem fær markið skráð á sig. Sara Carbonero segir ekkert til í því að Ronaldo glími við vandamál utan vallar. „Það hefur ekkert gerst fyrir hann í einkalífinu, hann er ekki þunglyndur og hefur ekki farið til sálfræðings eins hefur komið fram í einhverjum fjölmiðlum," sagði hin 25 ára gamla Sara Carbonero.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport Fleiri fréttir Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Setur magnað met gegn Íslandi og Glódís upp fyrir Katrínu Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Sjá meira