Innlent

Ágreiningur innan menntaráðs um trú

Oddný Sturludóttir
Oddný Sturludóttir
Meirihluti menntaráðs Reykjavíkur hefur lagt fram umsögn á breytingartillögum mannréttindaráðs á samstarfi leik- og grunnskóla í Reykjavík við trúar- og lífsskoðunarhópa.

Í umsögninni er sú breyting lögð til að þær stofnanir sem hafa starfandi áfallaráð tryggi að samráð verði haft við þá sem áfall snertir áður en kallað er til utanaðkomandi fagaðila til stuðnings. Þó skulu helgistundir tengdar áfallahjálp fara fram utan skólatíma.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í menntaráði greiddu atkvæði gegn tillögunni á fundi síðastliðinn miðvikudag og fulltrúi Vinstri grænna sat hjá. Í bókun Vinstri grænna segir meðal annars:

„Viðbætur meirihlutans við lið [um presta innan áfallaráða] eru aðfinnsluverðar og mikil afturför við nokkuð skýra tillögu mannréttindaráðs. [...] Sérfræðimenntun og kunnátta presta er fyrst og fremst á sviði guðlegra málefna og ætti því ekki að geta þeirra sérstaklega í lið [um presta innan áfallaráða]. Ekki þarf að hafa orð um það meir."

Í bókun Sjálfstæðisflokks sem lögð var fram á fundinum sagði meðal annars:

„Tillögur að reglum mannréttindaráðs um samskipti skóla og trúfélaga eru í heild sinni hið furðulegasta mál og kemur öllum er fjallað hafa um á óvart. Í fyrsta lagi endurspeglar tillaga meirihluta mannréttindaráðs ekki umburðarlyndi eða jafnræði heldur einkennist hún af miðstýringu og boðvaldi. [...]"

Stjórn SAMFOK, félags foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, hefur lýst yfir ánægju sinni með umsagnir menntaráðs, en leggur þó fram þá athugasemd að hún telji ekki að það stríði gegn mannréttindum eða flokkist undir trúboð að trúar- og lífsskoðunarfélög fái að kynna starfsemi sína á skólatíma.

Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs, segir umsögnina byggja á athugasemdum og vilja skólasamfélagsins. Allar athugasemdir hafa verið teknar til greina innan ráðsins og unnið út frá þeim.

Tillagan liggur nú hjá Íþrótta- og tómstundarráði og velferðarráði. Umsögnum verður skilað til mannréttindaráðs í næstu viku sem síðan skilar af sér lokatillögum fyrir jól.

sunna@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×