Erlent

Ótti um að harðari átök séu í uppsiglingu

Íbúar eyjunnar Yeongpyeong hafa reynt að bjarga því sem bjargað verður úr rústum húsa sinna.nordicphotos/AFP
Íbúar eyjunnar Yeongpyeong hafa reynt að bjarga því sem bjargað verður úr rústum húsa sinna.nordicphotos/AFP
Kim Tae-young, varnarmálaráðherra Suður-Kóreu, sagði af sér í gær, tveimur dögum eftir harkalega árás Norður-Kóreuhers á eyjuna Yeongpyeong sem kostaði fjóra menn lífið.

Lee Myung-pak forseti boðar aukna hernaðaruppbyggingu á eyjunni og sameiginlegar heræfingar með Bandaríkjunum um helgina, en Norður-Kóreumenn ítreka hótanir um fleiri árásir ef þeir telja sér ögrað.

Afsögn ráðherrans kom fáeinum klukkustundum eftir að þingmenn í Suður-Kóreu höfðu gagnrýnt stjórnvöld fyrir að hafa ekki verið nógu vel undir árásina búin, og herinn gagnrýndu þeir fyrir of hæg viðbrögð.

Átök milli landanna eru nokkuð algeng, en með árásinni á þriðjudag beindu Norður-Kóreumenn í fyrsta sinn vopnum sínum gegn almennum borgurum. Ótti hefur því vaknað um að harðari átök séu í uppsiglingu.

Stjórnvöld bæði Suður-Kóreu og Bandaríkjanna hafa skorað á Kínverja að beita áhrifum sínum til að halda aftur af Norður-Kóreu. Í gær ítrekuðu Kínverjar þau hvatningarorð sín til beggja Kóreuríkjanna, um að þau þurfi bæði að halda aftur af sér.

Íbúar eyjunnar vörðu deginum í gær til að kanna rústir þeirra húsa, sem eyðilögðust, og tóku með sér þær af eigum sínum sem enn reyndust í þokkalegu horfi.

„Þetta var sannkallað eldhaf,“ sagði Lee In-ku, 46 ára verslunareigandi á Yeongpyeong, um árásirnar á þriðjudag. „Mörg húsanna urðu eldi að bráð og margir íbúanna hlupu fram og til baka í algerri óvissu. Þetta var ringulreið.“

Lee forseti segir að hermönnum á Yeongpyeong og fleiri eyjum við markalínuna í Gulahafi verði nú fjölgað, en ekki fækkað smám saman eins og ákvörðun var tekin um fyrir fjórum árum.

Hann vildi ekki fara nánar út í þau áform, en sagði að nú væru um fjögur þúsund hermenn á eyjunum.

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur staðfest að bandarískt flugmóðurskip muni taka þátt í heræfingum á Gulahafi með her Suður-Kóreu, en þær heræfingar eiga að hefjast á sunnudaginn.

Norður-Kórea telur sig eiga tilkall til eyjanna og hafsvæðis á Gulahafi langt sunnan við markalínuna, sem Sameinuðu þjóðirnar tóku ákvörðun um árið 1953, segir til um.gudsteinn@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×