Innlent

Langflest fyrirtækja nota tölvur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Langflest fyrirtæki á Íslandi nota tölvur.
Langflest fyrirtæki á Íslandi nota tölvur.
Næstum öll fyrirtæki með 10 starfsmenn eða fleiri nota tölvur og net við starfsemi sína, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Það gera einnig um 94% fyrirtækja með 2-9 starfsmenn og 82% einstaklingsfyrirtækja. Vefsíða er aðgengileg hjá 38% íslenskra fyrirtækja og í 78% tilvika hjá fyrirtækjum með fleiri en 10 starfsmenn.

Um 16% fyrirtækja pöntuðu vörur eða þjónustu um netkerfi á síðasta ári og 10% fyrirtækja seldi vörur á þann hátt. Almennt er lítil reynsla af öryggisógnunum hjá fyrirtækjum en þó hafa 11% nettengdra fyrirtækja orðið fyrir því að upplýsingatækni lá niðri eða gögn töpuðust vegna bilunar í hugbúnaði. Af öryggisráðstöfunum sem tilgreindar voru geymdu 49% fyrirtækja afrit af gögnum utan fyrirtækis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×