Erlent

Önnur sprenging í kolanámunni

Mikill metangasleki er í námunni og björgunarsveitir gátu því ekki farið inn í hana að leita mannanna.
Mikill metangasleki er í námunni og björgunarsveitir gátu því ekki farið inn í hana að leita mannanna. Mynd/AFP

Enn ein sprenging varð í dag í kolanámunni á Nýja Sjálandi þar sem 29 námumenn fórust. Sprengingin varð næstum upp á mínútu einni viku eftir fyrstu sprenginguna sem talið er að hafi orðið námumönnunum að fjörtjóni.

Mikill metangasleki er í námunni og björgunarsveitir gátu því ekki farið inn í hana að leita mannanna. Boraðar hafa verið holur og send niður hlustunartæki en aldrei heyrðist neitt frá mönnunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×