Innlent

Tvö sjúkraflug frá Akureyri

Tvö sjúkraflug voru farin frá miðstöð sjúkraflugs á Akureyri í gær, og eru sjúkraflugin í ár því komin yfir 400.

Það eru heldur fleiri ferðir en allt árið í fyrra og slagar upp í met árið í hitteðfyrra. Óvenju annasamt hefur verið í sjúkrafluginu að undanförnu og var sjúklingur meðal annars sóttur til Grænlands í vikunni. Langflestir sjúklinganna eru fluttir til Reykjavíkur.

Tveggja hreyfla Beechcraft flugvél, með jafnþrýstibúnaði, er notuð til flugsins og er hún gerð út frá Akureyri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×