Innlent

Hljómflutningstækjum og flatskjám rigndi úr bílnum

Lögreglan á Selfossi handtók tvo innbrotsþjófa undir morgun eftir að þeir höfðu brotist inn í að minnsta kosti tvo sumarbústaði í Grímsnesi í nótt.

Lögreglumenn voru á ferð um uppsveitir Árnessýslu til að fylgjast með mannaferðum við sumarbústaði, þegar þeir sáu bíl þjófanna álengdar.

Þeir urðu lögreglunnar varir í sama mund og héldu af stað í aðra átt, en á meðan annar ók, tók hinn til við að fleygja þýfi út úr bílnum á ferð, svo flatskjám og hljómtækjum rigndi á veginn, uns lögregla náði að stöðva leikinn.

Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu, en lögreglan tíndi saman þýfið meðfram veginum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×