Innlent

Öflugir íþróttamenn á Seltjarnarnesi

Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri Valhúsaskóla.
Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri Valhúsaskóla.
Nokkrir nemendur úr 10. bekk Valhúsaskóla gómuðu í dag skæðan úlpuþjóf sem hefur stundað það að koma í skólann og stela úlpum af nemendum. „Það eru miklir íþróttamenn á Seltjarnarnesi. Þeir stökkva bara af stað og fara létt með þetta," segir Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri Valhúsaskóla.

„Það tvær stúlkur keyrandi að skólanum, fóru inn í skólann og ætluðu að ná sér í úlpur og voru byrjaðar að máta. Einn drengur sá þær og kallaði eftir aðstoð og fleiri komu að. Þegar aðstoðarskólastjórinn kom niður kallaði hann til þeirra og þær hlupu út," segir Guðlaug.

En þá var ballið rétt að byrja. Nokkrir nemendur úr 10. bekk þutu á eftir þjófnum, hlupu hana uppi og héldu henni þar til lögreglan mætti á svæðið. Áður en lögreglan kom reyndi hún allt sem hún gat til að losna úr prísund nemdandanna. Hún hótaði þeim öllu illu en þegar það gekk ekki bauð hún þeim 50 þúsund krónur gegn því að þeir létu hana lausa, en allt kom fyrir ekki. Enda er þetta í fyrsta skipti sem þessi þjófur hrellir nemendur í valhúsaskóla

„Nei, þetta er sama stúlka kom á mánudaginn og tók fimm úlpur. Hún kom aftur og aftur og lét eins og hún væri einn af nemendunum. Eftir þá uppákomu sýndum við börnunum mynd af stúlkunni."

Þá segir Guðlaug: „Þau hafa verið vör um sig og þetta er viss nágrannavarsla."




Tengdar fréttir

Úlpuþjófurinn ófundinn

Stúlkan sem sást taka fimm úlpur úr fatahenginu í Valhúsaskóla í fyrramorgun var ófundin síðdegis í gær. Hún sást greinilega á öryggismyndavélum.

Stal fimm rándýrum úlpum

Fimm rándýrum úlpum var stolið frá skólabörnum í Valhúsaskóla í gærmorgun. Stúlka náðist á mynd í öryggismyndavél, þar sem hún var að skoða úlpurnar og velja úr þær sem hún síðan tók með sér út. Málið var kært til lögreglu í gær.

Grunnskólabörn gómuðu úlpuþjófinn skæða

Skólabörn í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi hlupu uppi skæðan úlpuþjóf sem laumaðist inn í skólann í morgun. Stúlkan var að skoða úlpur sem hún hefur sennilegast ætlað stela. Þessi sama stúlka náðist á öryggismyndavél í skólanum á mánudag, en þá er talið að hún hafi stolið fimm 66° Norður úlpum. Slíkar úlpur eru dýrar. Þær geta kostað allt upp undir 70 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×