Innlent

Þyrlan sótti mann sem fékk höfuðhögg í vinnuslysi

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út eftir að karlmaður slasaðist í vinnuslysi á Patreksfirði í kvöld. Maðurinn mun hafa fengið höfuðhögg var talið nauðsynlegt að flytja hann til Reykjavíkur.

Maðurinn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi en talið er að áverkarnir hafi verið umtalsverðir en hann er þó ekki í lífshættu.

Þyrlan lenti í Reykjavík rétt fyrir klukkan tíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×