Innlent

Diskóeyjan verður að söngleik í Borgarleikhúsinu

Diskóeyjan er ein vinsælasta plata ársins og lagið Gordjöss hefur notið ótrúlegra vinsælda. Nú er afráðið að Diskóeyjunni verður breytt í söngleik og sett upp sem slík í Borgarleikhúsinu árið 2012.

Bragi Valdimar Skúlason og Óttarr Proppé, hugmyndasmiðirnir á bak við plötuna, ætla að setjast niður á næstunni og skrifa nýtt handrit sem verður þó byggt á söguþræðinum í Diskóeyjunni en hún fjallar um systkini sem send eru á Diskóeyjuna til að læra sitthvað um lífið og tilveruna hjá prófessornum, vinum hans og furðuverum. Þá stendur til að semja lög fyrir nýja Diskóeyjarplötu.

„Þetta var óumflýjanlegt og við Óttarr munum kokka þetta upp," segir Bragi Valdimar í samtali við Fréttablaðið. Hann veit reyndar ekki hvernig hann á að fara að því að ná í skottið á Óttarri því hann sé yfirleitt lokaður inni á fundum sökum starfs síns sem borgarfulltrúi Besta flokksins.

„Ég verð bara að tjóðra hann niður við næsta stól," segir Bragi í alvarlegum tón. Lagahöfundurinn og textasmiðurinn viðurkennir hins vegar góðfúslega að þetta hafi alltaf verið hugmyndin.

„Þetta var alveg á hernaðaráætluninni, að koma þessu í leikhúsið. Þegar við gerðum Gilligill-plötuna þá fundum við aldrei almennilegan flöt á þessu en frá því að við staðsettum persónu Óttars á Diskóeyjunni var þetta aldrei nein spurning í okkar huga."

Braga kom það jafnframt í opna skjöldu hversu vel leikhúsheimurinn er skipulagður. Því hann hafði allt eins búist við því að hoppa upp á svið um næstu helgi og frumflytja söngleikinn. Slíkt hefði nú ekki þótt óvanalegt í tónlistarheiminum. En stefnan hefur verið sett á 2012 og Stóra svið Borgarleikhússins.

Stóru spurningarnar hljóta hins vegar að vera tvær; mun Óttarr bregða sér í líki Prófessorsins og ætlar Páll Óskar að vera með?

„Það hefur komið til tals með Óttarr enda ekki auðvelt að fara akkúrat í þessa skó og feta í fótspor hans. Og hvað varðar Pál Óskar þá hefur verið rætt við hann. Páll er mjög jákvæður enda þykir honum ekkert leiðinlegt að spranga um sviðið."

freyrgigja@frettabladid.is










Fleiri fréttir

Sjá meira


×