Fleiri dæmi um alvarlega árás á móður sína Jón Þór Stefánsson skrifar 25. október 2024 12:57 Móðirin fannst látin í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Vísir/Vilhelm Karlmaður á fertugsaldri sem er í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans hlaut dóm fyrir tveimur árum vegna ofbeldis í garð móðurinnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu fór hann úr fangelsi í haust, en þá hafði hann lokið afplánun. Hann hafði setið inni í fangelsi allan afplánunartímann.
Fréttastofa greindi frá því í gærkvöldi að árið 2006 hafi maðurinn stungið föður sinn í bakið, en verið sýknaður vegna ósakhæfis. Þá komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að hann hefði verið alls ófær um að stjórn gjörðum sínum. Honum var gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Sjá nánar: Sonurinn áður stungið föður sinn í bakið Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um miðnætti í fyrradag og héldu viðbragðsaðilar strax á vettvang. Endurlífgunartilraunir hófust um leið og komið var á vettvang en þær báru ekki árangur. Konan, sem er tæplega sjötug samkvæmt heimildum fréttastofu, var úrskurðuð látin á vettvangi, í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Lögreglan greindi frá því í tilkynningu síðdegis í gær að karlmaður sem var handtekinn í nótt væri sonur konunnar. Sagði presti að hann hefði „lamið móður sína“ Árið 2022 hlaut maðurinn tveggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að ráðast á móður sína, kynferðisbrot gegn unglingsstúlku, og brot gegn valdstjórninni. Hann var ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir árásina gegn móðurinni, en dómurinn heimfærði brotið sem stórfellda líkamsárás. Málið varðaði atvik sem átti sér stað á heimili móðurinnar í apríl 2022. Manninum var gefið að sök að slá móður sína ítrekað með krepptum hnefum í líkama, andlit og höfuð, sparka í hana og taka hana ítrekað hálstaki þannig að hún missti meðvitund. Þá var hann jafnframt ákærður fyrir að hóta henni ítrekað lífláti. Í ákærunni segir að maðurinn hafi með þessu ógnað lífi, heilsu og velferð móður sinnar, en fram kom að hún hafi hlotið áverka víðs vegar um líkamann. Það var sóknarprestur sem tilkynnti atvikið. Sá hafði verið í símasambandi við soninn og móðurina. Fram kemur í dómi Héraðsdóms að þegar lögregla kom á vettvang hafi maðurinn verið rólegur og óspurður hafi hann tilkynnt þeim að hann hefði „lamið móður sína“. Vildi ekki að faðir sinn yrði brenndur Eiginmaður konunnar, og faðir mannsins, var nýlátinn þegar árásin átti sér stað og sagði að hann væri ósáttur með að hann fengi bálför. Þrátt fyrir það hafði hann farið með henni og þau keypt fallegt ker. Hann hafi seinna brjálast yfir bálförinni, ráðist á móðurina og sagt: „Ég drep þig, mundu það, ég drep þig ef hann verður látinn í brennsluofn, ég mun drepa þig.“ Að árásinni lokinni hafi sonurinn hringt í prestinn til að tilkynna honum að faðirinn yrði jarðaður. Presturinn hafi áttað sig á því að ekki væri allt með feldu og beðið um að tala við móðurina. Hann hafi fengið að tala við hana og ákveðið að spyrja hana einungis já og nei-spurninga, svo sonurinn myndi ekki átta sig á því hvað hún væri að segja. Dæmdur fyrir fleiri brot Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir kynferðisbrot gagnvart fimmtán ára stúlku í strætóskýli október árið 2020. Hann hafi kysst hana á hálsinn, reynt að kyssa hana á munninn og boðið henni peninga. Þar að auki hlaut hann dóm fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hóta lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra lífláti. Árið 2006 var hann sýknaður vegna ósakhæfis, en 2022 var það niðurstaða geðrannsóknar að hann væri sakhæfur. Þá hlaut hann tveggja ára fangelsisdóm. Reyna að greiða götu fólks Líkt og áður segir kláraði maðurinn afplánun á dómi í haust, en hann sat inni alla refsingu sína. „Það getur verið töluverð áskorun þegar fólk líkur afplánun, hvað tekur við?“ segir Birgir Jónasson, settur forstöðumaður Fangelsismálastofnunar, í samtali við fréttastofu. Hann getur ekki tjáð sig um einstök mál en getur rætt um ástandið almennt. „Oftast er reynt að haga málum þannig að það taki eitthvað við, en það gengur ekki alltaf. Við reynum að greiða götu fólks,“ segir hann og bætir við að þarfir fanga sem ljúka afplánun séu mismunandi.
Dómsmál Reykjavík Mest lesið Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Erlent Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sjá mikil batamerki eftir háþrýstimeðferð Innlent Áslaug um fartölvuna: „Það er alltaf reynt að gera stórmál úr svona hlutum“ Innlent Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga Innlent „Ef ég væri kóngur myndi ég heita Valtýr sautjándi“ Innlent Ætluðu að hringsóla yfir Eyjar þegar flugvélarnar skullu saman Innlent Þingmanni vikið úr Verkamannaflokknum eftir líkamsárás Erlent Treystir Bjarna betur en öðrum forystumönnum Innlent Fleiri fréttir Í blóma lífsins þegar hann lést í Fnjóská „Ef ég væri kóngur myndi ég heita Valtýr sautjándi“ Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga Reykvíkingur ársins leiðir listann ásamt Ragnari Sjá mikil batamerki eftir háþrýstimeðferð Treystir Bjarna betur en öðrum forystumönnum Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing og úrslitaleikur í Bestu deildinni Skólarnir eigi að hjálpa nemendum að ná árangri og vera jöfnunartæki Séra Davíð Þór leiðir Sósíalista í Suðvesturkjördæmi Áslaug um fartölvuna: „Það er alltaf reynt að gera stórmál úr svona hlutum“ Selenskí kemur til Íslands á morgun Brynjar fær þriðja sætið í Reykjavíkurkjördæmi norður Jón Pétur Zimsen í þriðja sæti Sjálfstæðismanna í Reykjavík suður Ekki beittur þrýstingi um að gefa eftir sæti Allt á floti á Auto í nótt Óheppilegt en ekki óvenjulegt Götulokanir og mikil öryggisgæsla vegna heimsóknar þjóðarleiðtoga Úthugsuð strategía eða alvarlegt reynsluleysi hjá Kristrúnu Bjarni Jónsson til liðs við Græningja Óheppileg birting einkaskilaboða og æsispennandi úrslitaleikur Ætluðu að hringsóla yfir Eyjar þegar flugvélarnar skullu saman Skólakerfið, pólitíkin, Bandaríkin og kílómetragjald Sigmundur og Þorgrímur leiða í Norðausturkjördæmi Neitaði að færa sig frá lögreglubíl Dagurinn þegar fyrsta þotan lenti í Reykjavík Botnar ekkert í hegðun Kristrúnar Skiltið í allt öðrum búningi en lagt var upp með Ingibjörg kemur í stað Bergþórs Ræddi ekki við aðra flokka og segir skilið við Sjálfstæðisflokk Sjá meira