Tíska og hönnun

Hönnunin rataði á síður Vogue

Hönnun Sunnu Daggar birtist á síðum Vogue Bambini á dögunum.
Fréttablaðið/Anton
Hönnun Sunnu Daggar birtist á síðum Vogue Bambini á dögunum. Fréttablaðið/Anton

„Nú fara Ítalirnir vonandi að taka línuna inn í sínar búðir," segir fatahönnuðurinn Sunna Dögg Ásgeirsdóttir.

Hluti úr nýjustu fatalínu hennar birtist í ítalska barnablaði Vogue á dögunum, Vogue Bambini. Sunna Dögg framleiðir undir merkinu Sunbird en það er aðeins eitt og hálft ár síðan hún byrjaði að hanna undir því merki. Sunna hafði áður unnið fyrir Nikita og Hagkaup, en þar var hún með fatalínu undir eigin nafni.

„Ég var að stílisera myndaþátt hér í sumar fyrir Vogue Bambini og fékk að setja eitthvað úr minni línu með," segir Sunna. Tímaritið er selt víðs vegar um heiminn og er þetta því mikil viðurkenning fyrir Sunnu. „Þetta er allavega geðveik auglýsing," segir Sunna og hlær.

Hún segir að Sunbird-línan hafi birst í fleiri erlendum tímaritum og bloggum svo ljóst er að hönnunin vekur athygli víða.

„Fólk virðist vera að taka eftir þessu. Ég miða við að fötin sem ég hanna séu þægileg en samt töff. Einnig hanna ég mikið á stráka, en oft er ekki lagt jafn mikið upp úr strákafötum eins og stelpufötum," segir Sunna, en hægt er að nálgast Sunbird-línuna í Mýrinni, Rumputuska, Bíbí og blaka og Fiðrildinu.- ka

Facebook-síða Sunbird.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.