Erlent

Námumennirnir á Nýja Sjálandi taldir af

Allir námumennirnir 29 sem lokuðust inn í Pike River námunni í suðurhluta Nýja Sjálands fyrir fimm dögum síðan eru nú taldir af.

Engin von er talin að finna nokkurn þeirra á lífi eftir að önnur mjög öflug gassprenging varð í námunni í gærkvöldi.

Tilkynningin um seinni sprenginguna og afleiðingar hennar voru mikið áfall fyrir fjölskyldur námumannanna sem beðið hafa fyrir utan námuna frá því að fyrri sprengingin varð í henni.

Yngsti námumaðurinn var aðeins 17 ára gamall og á fyrsta degi í vinnu sinni en sá elsti var rúmlega sextugur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×