Vonast eftir 15 milljarða loðnuvertíð 7. desember 2010 18:54
Fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað í Neskaupstað í dag. Bjartsýni ríkir um framhaldið og vonast menn til að loðnan skili yfir fimmtán milljörðum króna í þjóðarbúið í vetur. Það voru skipverjar á Berki NK sem lönduðu fyrstu loðnunni en þessar myndir tók Jón Guðmundsson þegar verið var að landa 430 tonnum úr skipinu á Norðfirði í dag. Sjómennirnir segja loðnuna mjög fallega en hún flæddi beint úr skipinu inn í flokkunarvélar Síldarvinnslunnar. Framkvæmdastjórinn, Gunnþór Ingvason, býst við að fjórðungur farmsins fari í vinnslu til manneldis. Meginhlutinn fer til lýsis og mjölframleiðslu þar sem hátt verð fæst fyrir þær afurðir um þessar mundir. Þetta er í fyrsta sinn i sex ár sem loðnu er landað fyrir jól í Neskaupstað og segir Gunnþór að þessi byrjun vertíðarinnar hafi mikil og góð áhrif fyrir samfélagið fyrir austan. Vopnfirðingar geta einnig farið að bretta upp ermar því Grandaskipið Ingunn er væntanlegt þangað í kvöld með 800 tonna farm. Þegar útgefinn byrjunarkvóti er ávísun á sjö til átta milljarða króna útflutningsverðmæti, að sögn Gunnþórs, en hann segir menn binda vonir við að loðnuvertíðin að þessu sinni gefi tvöfalt meira en það í þjóðarbúið.
Mest lesið Í blóma lífsins þegar hann lést í Fnjóská Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Selenskíj heimsótti Ísland og fundaði með forsætisráðherrum Innlent Vannærð og veik af áfengisneyslu eftir vetursetu í Evrópu Innlent Ný könnun: Viðreisn og Flokkur fólksins í hæstu hæðum Innlent Smitaðist fimm mánaða en lifir nú eðlilegu lífi Innlent Snorri sakar Hallgrím um ofureinfaldanir Innlent Þrír fluttir á sjúkrahús eftir þriggja bíla árekstur við álverið Innlent „Getum við verið sammála um að vera ósammála?“ Innlent „Það var annað hvort þetta eða vændi“ Innlent Fleiri fréttir Vitað mál að allir flokkar berjist ekki fyrir almannahag Þotur ráðherranna í krefjandi lendingum Karl Gauti og Ólafur Ísleifsson snúa aftur „Mér brá svolítið þegar ég sá þetta“ Verkfall lækna gæti hafist 18. nóvember Svona var dagur Selenskíjs á Íslandi „Ég skil vel foreldra sem eru í vandræðum“ Smitaðist fimm mánaða en lifir nú eðlilegu lífi „Aldrei gott að toppa of snemma“ Fer í leyfi sem formaður VR Heimsókn Úkraínuforseta og kennaraverkföll „Það var annað hvort þetta eða vændi“ Þau eru í framboði til Alþingis 2024 Snorri sakar Hallgrím um ofureinfaldanir Verkföll hefjast á morgun: „Þetta er þvílíkur ómöguleiki“ „Er það ekki það sem fíkniefnasali gerir? Selur fíkniefni?“ Vaktin: Selenskíj heimsótti Ísland og fundaði með forsætisráðherrum Virðist sem D hafi náð að hægja á blæðingunni til M Vopnaðir lögreglumenn standa vaktina Inga Sæland ætlar með Flokk fólksins upp í fimmtán prósent Bjarni fundar með forseta Úkraínu í dag Ný könnun: Viðreisn og Flokkur fólksins í hæstu hæðum Kaupa tilbúinn mat á meðan E.coli sýkingin er til rannsóknar Glóðvolg Maskínukönnun kynnt í hádegisfréttum Bylgjunnar Falla tímabundið frá ákæru fyrir tilraun til manndráps Rekja stuld á korti af Ísrael úr Seltjarnarneskirkju til átakanna Þrjú börn á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar „Getum við verið sammála um að vera ósammála?“ Grímur, Halla Hrund, Jens Garðar og Víðir mæta í Pallborðið Þröng á þingi í umfangsmiklu fíkniefnamáli Sjá meira