Erlent

Læstist inni á baðherbergi í 20 daga

Eldri konu í París var bjargað á dögunum en hún hafði setið föst inni á baðherbergi sínu í heila 20 daga. Baðherbergishurðin læstist og þar sem herbergið er gluggalaust átti hún engin ráð með að láta vita af sér.

Hún greip þó til þess ráðs að berja á pípulagnirnar á nóttinni. Nágrannarnir héldu þá að iðnaðarmenn væru við störf og fóru meira að segja af stað með undirskriftalista í blokkinni til þess að stöðva framkvæmdirnar.

Nokkrir nágrannar konunnar fóru þó að undrast um hana og höfðu að lokum samband við yfirvöld sem könnuðu málið. Slökkviliðsmenn brutust inn í íbúðina og komu að konunni liggjandi á gólfinu aðframkomna af hungri.

Eðlilega hafði konan aðgang að rennandi vatni og varð það henni til lífs að sögn lækna. Hún liggur nú á spítala og er á batavegi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×