Innlent

Krónunni verður ekki kastað fyrir 2015

Pallborðið Franek Rozwadowski, sendifulltrúi AGS, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Jón Daníelsson, dósent hjá LSE. Fréttablaðið/GVA
Pallborðið Franek Rozwadowski, sendifulltrúi AGS, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Jón Daníelsson, dósent hjá LSE. Fréttablaðið/GVA
Íslenska krónan fylgir þjóðinni næstu árin, burtséð frá því hvort landið gengur í Evrópusambandið eða ekki. Um þetta voru framsögumenn sammála í gær á morgunfundi Íslenskra verðbréfa í Reykjavík.

Á fundinum, sem bar yfirskriftina „Endurreisn Íslands“, tóku til máls Jón Daníelsson, dósent við London School of Economics, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Franek Rozwadowski, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi.

Jón benti á að jafnvel þótt samþykkt yrði aðild Íslands að Evrópusambandinu og Íslendingar vildu taka upp evru þá tæki við margra ára langt ferli aðlögunar. Í sama streng tók Franek Roswadowski sem taldi að krónan yrði hér í notkun í tíu ár hið minnsta. „Ef þið gangið í Evrópusambandið getið þið strax ákveðið að taka upp evru, en um leið er ekki hægt að taka hana upp strax,“ sagði hann og vísaði til þess að uppfylla þyrfti skilyrði Maastricht-sáttmálans til þess að fá að nota evru.

Í pallborðsumræðum að loknum framsögum lýstu bæði Jón og Hörður þeirri skoðun að mistök hefðu verið að setja hér gjaldeyrishöft. „Ég myndi vilja afnema þau jafnskjótt og auðið er,“ sagði Jón Daníelsson. „Og með því á ég við fyrir lok þessa árs.“

Jón sagði að best væri að aflétta höftunum í einni aðgerð, en ekki í nokkrum skrefum líkt og boðað hefur verið af hálfu Seðlabanka Íslands. „Því lengur sem beðið er með afnám hafta, þeim mun erfiðara verður að losna við þau,“ sagði Jón og taldi afar hættulegt ef hagkerfið næði að laga sig að viðvarandi gjaldeyris­höftum.

Franek Rozwadowski sagðist aftur á móti ósammála því að ekki væri hægt að afnema höftin í skrefum, en taldi ekki við hæfi að ræða nánar um þá framkvæmd þar sem í Seðlabankanum væri unnið að endurskoðun áætlunar um afnám haftanna. Um leið kvaðst hann talsmaður þess að höftin yrðu afnumin jafn skjótt og auðið væri, þótt hann teldi snöggt afnám óráðlegt. „Í þessu þarf að vanda til verka,“ sagði hann og kvað stórskaðlegt myndu verða fyrir trúverðugleika landsins ef setja þyrfti á höft á ný eftir afnám að hluta eða í heild. - óká



Fleiri fréttir

Sjá meira


×