Erlent

Upplýsa með leynd um leka

Breska stjórnin staðfesti í gær að bandarísk stjórnvöld hefðu skýrt frá því við hverju mætti búast í væntanlegum leka á vefsíðunni Wikileaks. Bretar vildu þó ekki upplýsa blaðamenn um það hvert inntak lekans gæti orðið.

Bandaríkjastjórn sagðist fyrr í vikunni ætla að upplýsa stjórnvöld vinveittra ríkja um lekann, sem talinn er fela í sér upplýsingar um orðsendingar bandarískra stjórnarerindreka til stjórnvalda í Bandaríkjunum.

Upplýsingarnar eru taldar geta komið sér illa fyrir samskipti Bandaríkjanna við sumar vinaþjóðanna.- gb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×