Innlent

Hasshundur fann fíkniefni falin í bíl

Nokkur grömm af marijuana og amfetamíni fundust falin í tösku í bíl, sem lögreglan á Blönduósi stöðvaði í gærkvöldi við reglubundið eftirlit.

Hasshundur lögreglunnar beindi athygli lögreglumanna að töskunni. Eigandinn sagði efnin til eigin neyslu og var honum sleppt að yfirheyrslum loknum, þar sem málið telst upplýst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×