Innlent

Þjóðvegur eitt lokaður vegna skemmda á brúnni yfir Seljalandsá

Frá Markarfljóti. Athugið að myndin er úr safni.
Frá Markarfljóti. Athugið að myndin er úr safni.

Vegna vatnavaxta og skemmda á brúnni yfir Seljalandsá, í nágrenni Markarfljóts, er þjóðvegur eitt lokaður eins og er, meðan verið er að kanna skemmdir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra.

Flughált er í Reykhólasveit, á köflum í Ísafjarðardjúpi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálka eða hálkublettir eru á flestum öðrum leiðum á Vestfjörðum. Þæfingsfærð er norður í Árneshrepp.

Á Norðurlandi vestra er Hringvegurinn auður austur í Skagafjörð en hálkublettir á Þverárfjalli og víða á útvegum.

Á Norðurlandi eystra er hálka eða hálkublettir á öllum leiðum. Þæfingur á Hólasandi.

Enn er vonskuveður á Austurlandi, flughált er í kringum Egilsstaði og upp að Biskupshálsi. Þæfingsfærð er á Vopnafjarðarheiði.

Ófært er um Vatnsskarð eystra, Fjarðarheiði, Fagradal og Oddskarð. Þó er fært frá Reyðarfirði til Eskifjarðar og einnig suður úr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×