Innlent

Brenndist illa af ljósboga - dvelur enn á spítala

Valur Grettisson skrifar
Spennustöð. Mynd úr safni.
Spennustöð. Mynd úr safni.

Starfsmaður Orkuveitunnar, sem brenndist við störf um klukkan sex á þriðjudagsmorgninum, dvelur enn á spítala vegna meiðsla sinna. Maðurinn vann að viðgerðum á spennustöð í Grafarvoginum.

Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur, brenndist maðurinn þegar ljósbogi myndaðist í spennustöð vegna skammhlaups. Vísir greindi frá því að hann hefði fengið rafstraum í hendina en svo var ekki. Ljósboginn er stórhættulegt fyrirbæri og mikill hiti fylgir því.

Samstarfsmaður mannsins kallaði þegar á sjúkrabíl og var hinn slasaði fluttur á sjúkrahús. Aðrir líkamshlutar en höndin virðast hafa sloppið og að sögn samstarfsmanna var hinn slasaði brattur þrátt fyrir meiðslin samkvæmt upplýsingafulltrúa Orkuveitunnar.

Lögregla og vinnueftirlit voru þegar kölluð til og er rannsókn slyssins í þeirra höndum ásamt rafmagnseftirliti Brunamálastofnunar. Jafnframt er farið yfir tildrög og ástæður slyssins af starfsfólki OR í því augnamiði að fyrirbyggja að slys af þessu tagi endurtaki sig.

Á þessu stigi eru hvorki vísbendingar um mistök eða bilun í búnaði.

Það er óljóst hvenær starfsmaðurinn verður útskrifaður af spítala en hann dvelur þar vegna sýklahættu.

Umsjónarmaður Reykjavíkurumdæmis Vinnueftirlitsins, Steinar Harðarson, segir rannsókn rétt hafna og því sé orsökin slyssins ekki fundin. Hann segir slysið hafa komið mjög á óvart enda töldu starfsmennirnir að spennustöðin væri rafmagnslaus.

Aðspurður hversu langan tíma svona rannsókn taki, svarar Steinar því til að hún taki um mánuð, þó sé alltaf mögulegt að hún dragist á langinn.

Samkvæmt upplýsingum á Vísindavefnum er ljósbogi fyrirbæri sem myndast þegar rafstraumur fer um gas. Við þær aðstæður hitnar gasið mjög, fasabreyting verður og það myndast svokallað rafgas (e: plasma).

Rafgasið leiðir rafstraum vel en til að fá fram rafgas við andrúmsloftsþrýsting þarf hátt hitastig eða yfir 7000 °C.

Í ljósboga verður varmamyndun vegna rafstraums til þess að viðhalda rafgasi og er algengt hitastig milli 20000 og 30000 °C.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×