Innlent

Ólafur áfram á hægum batavegi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur er áfram á hægum batavegi.
Ólafur er áfram á hægum batavegi.
Tónlistarmaðurinn Ólafur Þórðarson, sem varð fyrir hrottalegri líkamsárás á heimili sínu um miðjan síðasta mánuð, er enn á hægum batavegi samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu hans. Hann liggur enn á heila- og taugadeild Landspítalans en þangað fór hann af gjörgæsludeild fyrir rúmum hálfum mánuði síðan.

Sonur Ólafs, Þorvarður Davíð Ólafsson, sem hefur játað árás á föður sinn er enn í gæsluvarðhaldi og heldur rannsókn málsins áfram. Samkvæmt upplýsingum frá Friðriki Smára Björgvinssyni, yfirmanni rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, miðar rannsókn málsins vel. Beðið er eftir því að niðurstöðum geðrannsóknar, en þær liggja ekki enn fyrir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×