Innlent

Um tuttugu mótmælendur berja tunnur

Mótmæli fyrir utan Þjóðmenningarhúsinu.
Mótmæli fyrir utan Þjóðmenningarhúsinu. Mynd Anton Brink

Um tuttugu mótmælendur berja tunnur fyrir utan Þjóðmenningarhúsið þar sem samráðsfundur ríkisstjórnar með hagsmunaaðilum er haldinn vegna skýrslu sérfræðingahóps ríkisstjórnarinnar um skuldavanda heimilanna.

Gríðarlegur hávaði fylgir mótmælunum en röð af grænum tunnum hefur verið stillt upp á gangstéttinni fyrir utan húsið.

Mótmælin hafa farið friðsamlega fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×