Enski boltinn

Áttunda jafntefli Manchester United

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Manchester United endurheimti toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Birmingham í kvöld.

United og Manchester City er nú bæði með 38 stig á toppi deildarinnar en United er með betra markahlutfall og á þar að auki tvo leiki til góða.

Dimitar Berbatov kom United yfir með marki snemma í síðari hálfleik eftir sendingu frá Darron Gibson.

Lee Bowyer jafnaði svo metin með umdeildu marki á 90. mínútu. Markið skoraði hann af stuttu færi en boltinn barst til hans frá Nikola Zigic sem virtist hafa handleikið knöttinn.

Berbatov átti einnig skot í stöng í leiknum en allt kom fyrir ekki og áttunda jafntefli United í deildinni í vetur staðreynd. Liðið er þó enn taplaust.

Dimitar Berbatov er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með fjórtán mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×